Um þennan vef


Hvers vegna, hvenær, hvernig, hvað?

Á þessum vef birtast pistlar og greinar eftir Helga Hrafn Gunnarsson, tölvulúða og fyrrverandi þingmann, um hvað svosem honum dettur í hug að fjalla um hverju sinni.

Greinar sem hafa birst á öðrum vettvöngum birtast hér síðar, eftir að hafa fengið umfjöllun í þeim miðlum sem þær voru birtar í.

Ólíklega verður hér nokkurn tíma tæmandi yfirlit yfir allt sem hefur nokkurn tíma verið skrifað af höfundi, enda hefur margt af því blessunarlega fallið í gleymskunnar dá.


Helgi Hrafn Gunnarsson var alþingismaður á árunum 2013-2016, en bauð sig ekki fram í alþingiskosningunum 2016. Eftir einungis ár voru óvænt haldnar alþingikosningar að nýju og ákvað hann í trylltu ölæði að bjóða sig aftur fram og sat á Alþingi kjörtímabilið 2017-2021.

Utan þingstarfa hefur hann starfað við hugbúnaðargerð og kerfisstjórn.

Árið 2025 var hann kjörinn í stjórn Evrópuhreyfingarinnar sem berst fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið.